jól og dagarnir eftirHeiða Björk Guðjónsdóttir
Jólin vorum mjög góða og notaleg.
Var heima á aðfangadag, en fór svo með Ingvari til Bolungarvíkur á Jóladag sem var mjög notalegt, að vera með honum. En hann fór suður annan í jólum með pabba sínum.
Auðvitað var jólaboð heima hjá ömmu annan í jólum.
Systir hans
Ingvars átti strák annan í jólum.
Bara búið að vera notalegt að vera með alla fjölskylduna hérna.
Fór svo í skírn
hjá Ingu og Baldri en strákurinn er komið með nafnið Halldór Svavar Baldursson
Við mæðgurnar
horfðum svo loksins saman á Mamma Mía í gær en hún er ekkert svona sérstök eins
og maður var búin að frétta. Örugglega
sungið meira en í Grease, en lögin voru
samt skemmtileg að við sungum og dönsuðum með sem Ella frænda fannst
skemmtilegt. 
Í dag byrjaði dagurinn minn á því að ég rak hurðina á uppþvottavélini í sköflunginn á mér að er orðinn marinn þar. Sigga og Úlfar fóru suður.
Ég fór í vinnu og
var að ryksuga og var að kippa henni úr sambandi og þá flaug snúran og klóin fór
beint í ennið á mér og það fossblæddi úr því og mig verkar alveg hræðilega og fór
uppá sjúkrahús að láta skoða þetta, en þurfti að labba nærrum því um allt sjúkrahúsið
að finna einhvern til að líta á ennið. Jæja fann hjúkku sem sagði að það þyrfti
bara setja hefti plástur en ekki sauma sem betur fer, nema þá verður maður að
vera með hann bara þar til hann dettur af og þá fæ ég ekkert stórt ör. Að núna er bara smá kúla og mikill
hausverkur.
Svona var dagurinn minn.
Og svo byrjað að horfa á Dagvaktina sem Ella finnst svo skemmtilegt.
Ingvar sagði svo að Elva kona bróðir hans var send í keisara í dag því barnið átti að vera komið.
Svo er ég komin
að því að setja ermarnar á lopapeysuna hans Ingvars.
En hef ekkert meira að segja í bili
Nema Þakka fyrir árið og Gleðilegt nýtt ár
kv:~Hædí~
